Jóga · Öndun · Djúpslökun · Vatnsmeðferð · Heilun

Hjartaheimar

Mættu þér eins og þú ert

Jóga, öndun, djúpslökun, vatnsmeðferð og Reikiheilun gefa þér mýkt, nærveru og stund til að hægja á og einfaldlega vera.

Fastir opnir jógatímar · mið. 17:15 & fös. 12:00 → Værð & Mildi · lau. 10:00 →
Kona í hugleiðslustellingu í jógasalnum í Hjartaheimum, með kertaljós beggja vegna

Jógatímar

Jóga · Öndun · Djúpslökun

Fastir opnir tímar:

Miðvikudaga kl. 17:15

Föstudaga kl. 12:00

B4 · Bolholt 4 · 4. hæð

60 mínútur · 3.500 kr

Allir velkomnir, óháð reynslu.

Jóga hjá Hjartaheimum snýst um að koma heim í líkamann með mjúkri en markvissri hreyfingu, öndun og nærveru. Áherslan er ekki á að ná ákveðinni stöðu, heldur á að hlusta á líkamann og losa um óþarfa spennu.

Við vinnum meðal annars með jóga í anda Raja og Ashtanga jóga, þar sem öndunin er rauði þráðurinn í gegnum tímann. Við notum Ujjayi öndun í hreyfingum og gefum sérstakan gaum að því að mýkja kviðinn, fylla lungun, lengja hrygginn og leyfa mjöðmum og líkama að losna smám saman.

Öndunin fær sérstakt rými í tímunum. Við lærum að nota hana meðvitað til að skapa meiri nærveru og tengingu við líkamann.

Þessir tveir tímar í viku hverri verða fastur punktur sem þú getur alltaf treyst á. Þú ert velkomin hvort sem þetta er fyrsti tíminn þinn eða þú kemur aftur og aftur.

Kona í hugleiðslustellingu á jógadýnu í Hjartaheimum
Nánar um öndunartæknina í tímanum

Þreföld öndun (Dirgha Pranayama)

Öndun þar sem við lærum að nota lungun til fulls og leyfum andardrættinum að verða hægari, dýpri og mýkri.

Ujjayi öndun

Mjúk og meðvituð öndun sem fylgir okkur í gegnum jógaiðkunina og hjálpar okkur að halda athyglinni inni í líkamanum.

Anuloma Viloma

Víxlöndun þar sem andað er til skiptis um nasir. Hún er notuð til að hægja á, beina athyglinni inn á við og undirbúa okkur fyrir slökun og kyrrð.

Í lok tímans · Djúpslökun · Nidra

Tíminn endar alltaf í djúpri slökun (Yoga Nidra) þar sem róleg og markviss leiðsögn fylgir þér í gegn. Athyglinni er beint inn í líkamann, að öndun og innri upplifun, og líkami og hugur fá að sleppa smám saman inn í dýpri hvíld.

Þú þarft ekkert að gera eða kunna. Þú leggst einfaldlega niður, lokar augunum og fylgir leiðsögninni. Líkami og hugur fá að hægja á sér og sökkva smám saman inn í djúpa hvíld.

Hægðu áAndaðuSlepptuHvíldu

Bóka í opinn tíma · mið. 17:15 & fös. 12:00
Hópur í djúpslökun á jógadýnum, umvafinn teppum í kertaljósi

Værð & Mildi · jóga og tónheilun

Í samstarfi við LovE Yoga:

Laugardaga kl. 10:00

Bolholt 4

Jóga, öndun, slökun og tónheilun. Opnir tímar, bókað og skráð hjá LovE Yoga.

Skrá sig hjá LovE Yoga →

Tíminn hefst á djúpri þrefaldri öndun, Dirgha Pranayama, og haföndun (Ujjayi) fylgir okkur svo í gegnum mjúkt jógaflæði í anda Raja og Ashtanga jóga, hreyfingu sem mýkir, styrkir og losar um spennu, án þess að miða að fullkomnun.

Lifandi tónheilun frá skálum, gongi og öðrum hljóðfærum fylgir allan tímann, ofin inn í öndun, hreyfingu og hvíld, stundum björt og létt, stundum djúp og jarðtengd.

Tíminn endar á víxlöndun (Anuloma Viloma) og 30 mínútna leiddri djúpslökun undir teppi, þar sem tónheilunin heldur áfram að hljóma um rýmið.

FinnaAndaLeyfa

Þú þarft ekki að vera liðug/ur eða hafa stundað jóga áður. Komdu eins og þú ert.

Guðlaug í jógarýminu að Bolholti 4

Fimmtudagar með Gullu

Stund bara fyrir þig

Á fimmtudögum tekur Gulla á móti þér í einkatíma í Bolholti 4. Veldu jóga, öndun og leidda djúpslökun eða Reikiheilun. Stundin er aðlöguð að þínum þörfum og líðan.

Langar þig að koma? Sendu Gullu línu með óskum þínum og þið finnið tíma sem hentar.

Bolholt 4 · 4. hæð

60 mínútur · 9.800 kr.

Einkatímar

Einstaklingsmiðuð stund, aðeins fyrir þig

Í einkatíma gefst tækifæri til að fara hægar, dýpra og aðlaga stundina að þínum þörfum og líðan. Að öllu jöfnu kemur Gulla til þín og tímarnir eru heima hjá þér, en á fimmtudögum er hún í Bolholti 4 og tekur á móti þér þar. Þú getur valið á milli:

I

Jóga · Öndun · Djúpslökun

Einstaklingsmiðuð stund með áherslu á hreyfingu, öndun og djúpa slökun, löguð að þínum aðstæðum.

II

Vatnsmeðferð · Aguahara

Djúp vatnsupplifun þar sem stutt er við þig allan tímann í sundlaug.

III

Reikiheilun

Mild orkumeðferð þar sem þú færð rými til að taka á móti, hlusta inn á við og njóta kyrrðar.

Veldu það sem kallar á þig.

Einkatími

Reikiheilun

Reiki er japönsk orkumeðferð sem byggir á þeirri hugmynd að lífsorka flæði í gegnum allt sem lifir. Í Reikimeðferð leggst þú á bekk í rólegu umhverfi á meðan hendur eru lagðar létt á líkamann eða þeim er haldið rétt fyrir ofan hann. Unnið er eftir ákveðnu flæði og athyglinni beint að ólíkum svæðum líkamans.

Margir upplifa hlýju, titring, léttleika eða djúpa kyrrð meðan á meðferðinni stendur. Hjá sumum verður hugurinn kyrrari, á meðan aðrir finna sterkari tengingu við líkamann eða upplifa að tilfinningar sem hafa verið undir yfirborðinu fái rými. Upplifunin er þó einstaklingsbundin og engar tvær meðferðir eru eins.

Reiki er notað til að styðja við jafnvægi, vellíðan og slökun. Þetta er falleg leið til að gefa sér tíma til að stoppa, hlusta inn á við og taka eftir því sem líkaminn og hugurinn eru að segja. Þú þarft aðeins að koma eins og þú ert og leyfa þér að taka á móti.

Stund til að veraStund til að taka á mótiStund fyrir þig

Hendur styðja við höfuð í Reikimeðferð við kertaljós

Einkatími

Vatnsmeðferð · Aguahara

Vatnið heldur þér. Aguahara er djúp vatnsupplifun þar sem þú flýtur í sundlaug á meðan við styðjum við líkamann allan tímann með mjúkum og flæðandi hreyfingum.

Með því að losa um þyngdaraflið getur líkaminn smám saman gefið eftir og hugurinn hægir á sér. Þú þarft ekki að gera neitt – aðeins að leyfa þér að fljóta, anda og treysta.

Hluti af upplifuninni fer fram undir yfirborði vatnsins, þar sem notuð er nefklemma og þú ert áfram í algeru flæði og stutt við líkamann allan tímann. Þegar umhverfishljóðin minnka getur skapast djúp kyrrð, þyngdarleysi og sterkari tenging við líkamann og innra rýmið.

Þú ræður alltaf þínum mörkum og ferð aðeins eins langt og þér líður vel með.

Þú mátt bara fljóta.

Kona flýtur í sundlaug, studd af leiðbeinanda, í Aguahara vatnsmeðferð

Fleiri valmöguleikar

Portrett í jógasalnum í Hjartaheimum
Gulla hjá Hjartaheimum

Um mig

Guðlaug Ósk Pétursdóttir

Ég er jógakennari, gullsmiður og tómstunda- og félagsmálafræðingur. En undir öllum þessum hlutverkum liggur sama forvitnin um það sem býr undir yfirborðinu: tengslin milli líkama, huga, tilfinninga og orku.

Hjartaheimar urðu til út frá þeirri löngun að skapa rými þar sem ekkert þarf að laga eða flýta, bara gefa okkur tíma til að vera.

Ég hef starfað á ólíkum sviðum sem hafa kennt mér margt um manneskjuna og lífið, og í dag sameina ég það í gegnum jóga, öndun og djúpslökun, vatnsmeðferð og Reikiheilun.

Mér finnst sérstaklega fallegt hvernig ólíkar leiðir geta unnið saman. Stundum þurfum við hreyfingu og öndun. Stundum þurfum við að láta vatnið bera okkur. Stundum þurfum við einfaldlega að liggja kyrr og leyfa líkamanum að slaka á.

Ég trúi á visku líkamans. Markmiðið mitt er ekki að segja þér hvernig þú átt að vera, heldur að skapa öruggt rými þar sem þú getur tengst þér á þínum eigin forsendum.

Verið velkomin í Hjartaheima.

Hafðu samband

Segðu mér frá þér

Hvort sem þú ert að velta fyrir þér einkatíma, námskeiði eða ert bara með spurningu, sendu þá línu og við finnum út úr því saman.

Samfélagsmiðlar
Facebook · Instagram

Sjá persónuverndarstefnu um meðferð gagna.

Umsagnir

„Það var svo dásamlegt að koma í jóga til Gullu. Hún er með yndislega, róandi nærveru sem gerir það að verkum að manni líður vel um leið og maður kemur inn. Jógatíminn hitti algjörlega í mark hjá mér og öndunaræfingarnar voru krefjandi á svo góðan hátt. Allt svo nærandi fyrir taugakerfið. Mæli svo innilega með.“

Guðríður

„Yndisleg og nærandi jógaupplifun og Aguahara vatnsmeðferð hjá Guðlaugu. Hún er einstaklega flottur kennari, með hlýja og góða nærveru sem skapar rólegt og öruggt umhverfi. Mér leið mjög vel í tímunum hjá henni og náði góðri slökun. Endurnærandi upplifun sem ég mæli hiklaust með.“

Íris

Sjálfsþekking

Leiðir til að kynnast sjálfum þér á dýpri hátt

Stundum getur verið hjálplegt að fá nýtt sjónarhorn á það hver við erum, hvernig við bregðumst við, hvað drífur okkur áfram og hvernig við tengjumst öðrum. Gene Keys, Human Design og Enneagram eru ólíkar leiðir sem geta opnað nýja sýn á persónuleika, mynstur, styrkleika og áskoranir, verkfæri til sjálfsskoðunar, ekki til að skilgreina okkur eða setja í kassa.

Nánar um Gene Keys, Human Design og Enneagram

Gene Keys

Ferðalag inn á við sem getur hjálpað þér að skoða eigin mynstur, áskoranir og hæfileika og sjá þau frá nýju sjónarhorni.

Human Design

Kerfi sem skoðar hvernig fólk er samsett, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig samskipti við umhverfið mótast.

Enneagram

Leið til að skoða persónuleikamynstur, hvata og ómeðvitaðar leiðir sem við notum til að bregðast við lífinu og skapa öryggi.

Markmiðið er ekki að finna út hver þú „ættir“ að vera, heldur að sjá þig skýrar, eins og þú ert.

Þessir tímar eru bókanlegir sem einkatímar.

Tónlist

Lagalistar

Til að hlusta á í ró heima, eða rifja upp andrúmsloftið eftir tíma.

Hjartaheimar

Hjartaheimar · jógatímar

Bóka tíma